Fundargerð
aðalfundar Þjóðræknisfélags Íslendinga, ÞFÍ, sem haldinn var miðvikudaginn 27. maí 2026 í húsakynnum utanríkisþjónustunnar að Reykjastræti 8 í Reykjavík.
Guðrún Ágústsdóttir, formaður ÞFÍ, setti fundinn kl. 16:30 og bauð fundargesti velkomna. Guðrún lagði til að Pála Hallgrímsdóttir yrði fundarstjóri og Soffía Ásgeirs Óskarsdóttir yrði fundarritari sem var samþykkt athugasemdalaust.
Pála tók við stjórn fundarins, kynnti dagskrá hans samkvæmt 3. gr. laga ÞFÍ og lýsti því yfir að fundurinn væri löglega boðaður samkvæmt þeim ákvæðum um boðun hans, sem í 3. greininni er tilgreind. Voru engar athugasemdir gerðar.
Skýrsla stjórnar
Guðrún formaður kynnti skýrslu ÞFÍ fyrir starfsárið 2025-2026. Sú skýrsla fylgir fundargerð þessari.
Stjórn ÞFÍ hefur fundað í húsnæði Búseta í Síðumúla og einnig í Eddu húsi íslenskunnar og er stjórnin afar þakklát fyrir aðstöðuna. Einnig hefur verið boðið upp á þátttöku í gegnum Zoom, sem nýttist vel. Meðlimir í félaginu eru í dag 257.
Starfsárið hefur verið fjölbreytt og skemmtilegt að venju og eins og áður kom fram þá fylgir skýrsla með fundargerðinni en helstu umfjöllunarmál skýrslunnar eru þessi:
Samskipti við Vesturheim eru margvísleg og til að mynda fór Pála Hallgrímsdóttir, þáverandi formaður, á INLNA ráðstefnu í Gimli í maí 2025 og Guðrún Ágústsdóttir, nýr formaður, sótti Íslendingahátíðina í Gimli í ágúst 2025.
Þjóðræknisþing var haldið sunnudaginn 7. september 2025 á Hótel Natura. Á þriðja hundrað gestir, bæði íslenskir og erlendir, sóttu þingið sem þótti afar vel heppnað og var með fjölbreyttri og góðri dagskrá að vanda.
Fræðslukvöld var haldið þ. 27. nóvember 2025 í Veröld, húsi Vigdísar þar sem að Hrannar Bragi Eyjólfsson kom og kynnti bók sína um ævi afa síns, sr. Braga Friðrikssonar. Á eftir honum flutti Viðar Hreinsson erindi um Stephan G. Stephansson.
Skemmtikvöld var haldið á Kjarval þ. 8. apríl 2026 þar sem að Barbaríkvartettinn og Bjargræðiskvartettinn komu fram og vöktu þeir mikla lukku á meðal gesta sem sóttu skemmtunina vel.
Nafnabreyting hefur lengi borið á góma og hefur stjórnin unnið að því í vetur að félagið skipti um nafn og verði framvegis Vesturheimur - vináttufélag.
Samskipti við vini í Vesturheimi eru mikil og góð. Fólkið okkar þar er farið að kalla sig yfirleitt Kanadamenn af íslenskum uppruna. Gwen Sigrid Morgan og Douglas Hanson hafa setið í stjórn ÞFÍ og setið fundi í gegnum Zoom, ennfremur Mark Petursson í Calgary.
Snorrasjóður fékk nýja stjórn nýverið og frá ÞFÍ voru tilnefnd Pála Hallgrímsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ólöf Sigvaldadóttir.
Styrkur var veittur til Framhaldsskólans á Laugum fyrir íslenskuáfanga þar sem kennt er um Vesturferðir Íslendinga.
Vigdísarverðlaunin voru veitt til Dr. Ryan Eyford þ. 6. nóvember 2025. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag til tungumála og menningar.
Vefur og miðlar voru nýttir til að auglýsa viðburði Þjóðræknisfélagsins. Eru þetta vefsíða félagsins og tvær Facebook síður sem að stjórnin telur að best sé að sameina.
Að lokinni yfirferð árskýrslu, þakkaði Guðrún utanríkisráðuneytinu fyrir að styrkja vel við félagið og einnig sendiráðum Kanada og Bandaríkjanna fyrir sýndan stuðning. Samstarfsaðilum í Vesturheimi þakkaði hún einnig fyrir sýndan stuðning og sendi hlýjar kveðjur vestur. Ennfremur þakkar Guðrún fyrirrennurum sínum, þeim Hjálmari, Huldu Karen og Pálu, og stjórninni allri fyrir aðstoð og stuðning á þessu starfsári sem að er að ljúka.
Ársreikningur 2025
Var þá komið að kynningu á ársreikningi ÞFÍ fyrir síðastliðið starfsár en ársreikningurinn fylgir fundargerð þessari. Gjaldkeri félagsins, Helga Hilmisdóttir gerði grein fyrir niðurstöðum hans, sem staðfestur hafði verið af skoðunarmönnum félagsins, þeim Maríu I. Jónsdóttur og Ylfu Ýr Steinsdóttur.
Tekjur félagsins voru samtals kr. 1.458.507 og gjöld samtals kr. 4.528.433.
Tekjuafgangur (tekjuhalli) var kr. 3.213.479. Handbært fé og jafnframt eigið fé var samtals kr. 8.585.579
Skýrsla stjórnar var borin upp til umræðu, ásamt ársreikningi. Engar umræður urðu og voru gögnin samþykkt samhljóða.
Lagabreytingar
Næst var komið að lagabreytingum og bauð fundarstjóri Guðjóni Arngrímssyni í pontu til að útskýra tillögu að nafni og rök fyrir nafnabreytingunni. Guðjón skýrði frá aðdraganda þess að félagið var nefnt Þjóðræknisfélagið og hvernig nafnið í dag gefur ranga mynd af starfsemi félagsins. Tillaga var að félagið heiti framvegis Vesturheimur - vináttufélag.
Steingrímur J. Sigfússon kom næstur upp og fór yfir lög félagsins og kynnti hvernig þau myndu breytast. Hvað hverfur út og hvað kemur í staðinn.
Eins þarf að breyta orðalagi svo að orðið Vesturheimur komi ekki of oft fyrir í lögunum. Eins verður orðalagi breytt til að aðlagast nútímanum.
Að lokinni yfirferð voru umræður teknar um tillögurnar, og spurði fundargestur hvort að engin skammstöfun verði með nýja nafninu, þar sem að áður hafi ÞFÍ verið mikið notað. Kom fram að ekki hafi það verið skoðað og að líklega hafi ÞFÍ komið til vegna þess hve nafn félagsins var langt. Ekki varð niðurstaða með þetta og von er að nafnið Vesturheimur festist í sessi.
Þá var komið að því sem að flestir biðu eftir, en það var að kjósa um nafnabreytingu og nýtt nafn. Bar fundarstjóri upp tillögurnar í þessari röð:
Tillaga um nafnabreytingu Tillaga um að breyta lögum. 2. gr. Tillaga um allar aðrar orðalagsbreytingar Tillaga um að heildarlögum félagsins verði breytt
Allar tillögur voru samþykktar. Einn fundargestur sagðist þó vilja sitja hjá varðandi lið a), þar sem að hann væri fæddur undir stjórn Danakonungs og væri því þjóðrækinn. Hann sagðist þó samt sem áður hlynntur breytingunum.
Kjör stjórnar, varastjórnar og skoðunarmanna
Í kjörnefnd ÞFÍ sitja eftirtaldir einstaklingar: Hulda Karen Daníelsdóttir, Hjálmar W. Hannesson og Sigurður Rúnar Jónmundsson. Hulda Karen kynnti tillögu kjörnefndarinnar og hafði hún á orði að vinnan hafi verið afar auðveld þetta árið þar sem að allir meðlimir halda áfram í stjórn. Eina breytingin er sú að Pála Hallgrímsdóttir yfirgefur stjórnina eftir að hafa sinnt skyldum sínum sem fráfarandi formaður. En í lögum félagsins segir að fráfarandi formaður sitji eitt ár eftir að formannsembætti lýkur. Tillaga kjörnefndar var samþykkt samhljóða með lófaklappi og munu eftirfarandi einstaklingar því skipa stjórn ÞFÍ næsta ár.
Áfram sitja í stjórn til aðalfundar ársins 2027:
Formaður er Guðrún Ágústsdóttir.
Aðalmenn eru Bjarni Þór Þórólfsson, Jón E. Gústafsson og Soffía Ásgeirs Óskarsdóttir.
Nýkjörnir aðalmenn í stjórn til tveggja ára (2026-2028):
Guðjón Arngrímsson, Katelin Marit Parsons og Steingrímur J. Sigfússon.
Varamenn kosnir núna til eins árs (2026-2027): Guðrún Guðsteinsdóttir, Helga Hilmisdóttir og Ólöf Dögg Sigvaldadóttir.
Fulltrúar afkomenda íslenskra landnema eru Douglas Hanson fyrir INLUS og Mark Petursson fyrir INLNA.
Skoðunarmenn kjörnir til eins árs eru María Ingibjörg Jónsdóttir og Ylfa Ýr Steinsdóttir
Kjörnefnd vegna næsta aðalfundar
Fundarstjóri bar upp tillögu þess efnis að kjörnefnd til næsta aðalfundar yrði skipuð óbreytt og var það samþykkt með lófaklappi. Verða því áfram í kjörnefnd Hulda Karen Daníelsdóttir, Hjálmar W. Hannesson og Sigurður Rúnar Jónmundsson.
Önnur mál
Fundargestur kvaddi sér hljóðs og sagðist hafa heimsótt Ellis Island fyrir nokkru. Þar tók hann eftir því að á landakorti sem þar er til sýnis væri Ísland ekki sjáanlegt. Hann hvatti félagið til að koma þessari athugasemd á framfæri.
Var nú gert fundarhlé og veitingar snæddar í boði utanríkisráðuneytisins.
Minningar um merkar konur
Eftir fundarhlé kom í ræðustól Hulda Karen Daníelsdóttir, fyrrverandi formaður ÞFÍ og Snorrasjóðs, og minntist fjögurra mætra kvenna í Vesturheimi sem féllu frá á síðustu mánuðum. Eru þetta þær Gunnþóra Gísladóttir, Jóhanna Wilson, Gunnvör Ásmundsson og Elva Simundson sem allar lögðu íslensku samfélagi í Vesturheimi mikið lið og voru óþreytandi við að vinna að framgangi þess og velferð. Blessuð sé minning þeirra.
Beck – sjóðurinn
Þá næst kom Torfi H. Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands, og flutti erindi um samstarf Háskóla Íslands og University of Victoria. Ríkharður (Richard) og Margrét Beck voru frumkvöðlar í eflingu tengsla Íslands og vestur-íslensks samfélags í Kanada, og stofnuðu Beck-sjóðinn sem hefur stutt fræðimenn og samstarf milli landanna. Torfi hefur sjálfur dvalið í Kanada sem gestaprófessor í boði sjóðsins og sagði frá hjónunum og reynslu sinni af samstarfinu.
Þar með var dagskrá tæmd og fundi slitið kl. 18:36.

Óðinsgötu 7
101 Reykjavík
Persónuverndarstefna