Gestir á Þjóðræknisþingi 2025. Á myndinni má m.a. sjá frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands sem ávarpaði þingið.
Nýja nafnið Vesturheimur – vináttufélag var samþykkt einróma á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Reykjavík 27. maí 2026.
Nafnabreytingin á sér langan aðdraganda. Félagið var stofnað í Winnipeg eftir lok fyrri heimsstyrjaldar fyrir rúmum 100 árum í þeim tilgangi að varðveita íslenska tungu, menningu og þjóðernisvitund meðal afkomenda Íslendinga vestanhafs og styrkja tengsl þeirra við Ísland.
Fyrsti formaður félagsins, séra Rögnvaldur Pétursson, ritaði stefnuyfirlýsingu félagsins og sagði markmiðið að afhenda tungu og menningu Íslendinga til samfélagsins vestra „er lýsir hinum norrænu hugsunum, hinu norræna einstaklingseðli, hinum norræna skilningi á kröfum og tilgangi mannlífsins, sem, að vorum dómi, er fullkomnari og æðri en skilningur sumra annarra þjóða.“
Hugtakið „þjóðræknisfélag“ endurspeglar þannig þjóðernishyggju sem var ríkjandi snemma á 20. öld, þegar þjóðleg sjálfsmynd var í mótun bæði vestanhafs og á Íslandi.
Í nútímasamfélagi getur hugtakið hins vegar haft úrelta eða jafnvel fráhrindandi merkingu, sérstaklega fyrir yngra fólk og alþjóðlegt samstarf.
Í dag er félagið rekið á Íslandi, og meginhlutverk þess er að viðhalda menningar-, sögulegum og persónulegum tengslum við Vestur-Íslendinga og Íslandsvini vestra, ekki að móta eða styrkja þjóðerniskennd Íslendinga almennt. Núverandi nafn gefur því ranga mynd af starfsemi og tilgangi félagsins. Með nýju nafni má halda áfram að heiðra arfleið Þjóðræknisfélagsins, en um leið tryggja að félagið sé skiljanlegt og viðeigandi í samtímanum.
„Nafnið hefur um langt skeið gefið ranga mynd af starfsemi og tilgangi félagsins og breytingin því löngu tímabær“, segir Guðrún Ágústsdóttir, forseti félagsins, en hún og eiginmaður hennar, Svavar Gestsson, voru um skeið fulltrúar utanríkisráðuneytisins þegar ný aðalræðismannsskrifstofa var stofnuð í Winnipeg.
Guðrún segir hugtakið Vesturheimur vísa beint til flutninga og búsetu Íslendinga vestanhafs og vináttufélag lýsi megininntaki starfseminnar. „Þetta félag okkar, Vesturheimur - vináttufélag, byggir á því að vesturferðir Íslendinga á árunum 1870–1920 eru einn merkasti og áhrifamesti viðburður Íslandssögunnar. Með vesturferðunum urðu Íslendingar þátttakendur í heimssögulegum atburðum er mikill straumur fólks, frá Evrópu og víðar að, flykktist til Ameríku og ný heimsmynd varð til. Með fjölbreyttu menningar- og fræðslustarfi vill félagið tryggja að þessi mikilvæga arfleifð haldist lifandi og að áhrif vesturferðanna verði áfram sýnileg í íslensku samfélagi,“ segir Guðrún.
Félagsmönnum hefur farið fjölgandi að undanförnu og áhuginn á góðu tengslunum við vini og ættingja heldur áfram þrátt fyrir að 150 ár séu liðin frá því að stærstu hóparnir fóru vestur um haf frá Íslandi.
Byggt á fréttatilkynningu dags. 1. júní 2026 og framsögu Guðjóns Arngrímssonar ritara félagsins fyrir nafnbreytingunni.

Óðinsgötu 7
101 Reykjavík
Persónuverndarstefna