137. Íslendingadagurinn var haldinn í Gimli um síðustu helgi. Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðisráðherra og Guðbjörg kona hans voru heiðursgestir. Auðbjörg Halldórsdóttir sendiherra okkar í Ottawa og Vilhjálmur Wium aðalræðismaður voru mætt ásamt mörgum öðrum góðum gestum.
Vinir okkar í Vesturheimi tóku gífurlega vel á móti okkur og gerðu heimsóknina ógleymanlega eins og jafnan áður. Fjallkonan María Bear dóttir Stefáns og Ollu og systir Lornu og Ernest Tergesen/Stefanson var öllum til sóma.
Við í stjórn Vesturheims – vináttufélags (áður Þjóðræknisfélagsins) þökkum fyrir vináttu og samstarf í áratugi. Sigrún Ásmundsson forseti Íslendingadagsins stóð sig geysivel, svo ekki sé meira sagt.
Guðrún Ágústsdóttir, formaður.
Hér að neðan má sjá myndir frá deginum.